Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Verkefnastjóri byggingarmála

Mosfellsbær leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra byggingarmála. Starfið er fjölbreytt og felur í sér byggingareftirlit, yfirferð umsókna og hönnunargagna, fasteignaskráningu og ráðgjöf til íbúa, hönnuða og annarra hagaðila.

Um starfið

Verkefnastjóri starfar undir stjórn byggingarfulltrúa og tekur þátt í að tryggja faglega, vandaða og skilvirka afgreiðslu byggingarmála. Starfið krefst góðrar þekkingar á mannvirkjagerð og laga- og reglugerðarumhverfi, mikillar nákvæmni og hæfni til að miðla upplýsingum skýrt til ólíkra hagaðila.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • vinnur sjálfstætt, skipulega og af nákvæmni,
  • er lausnamiðaður, þjónustulipur og á auðvelt með samstarf,
  • sýnir frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð í störfum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggingareftirlit á verkstað og framkvæmd úttekta. 
  • Yfirferð aðaluppdrátta, verkfræði- og séruppdrátta og annarra hönnunargagna í samráði við byggingarfulltrúa. 
  • Yfirferð og þáttaka í  afgreiðslu umsókna og utanumhald rafrænnar byggingargáttar. 
  • Útgáfa vottorða vegna byggingarframkvæmda og skráningar mannvirkja. 
  • Fasteignaskráning, viðhald fasteignagjaldagrunns og samskipti við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og aðrar stofnanir sem koma að byggingarmálum. 
  • Umsjón og gerð lóða-, hæðar- og mæliblaða, og samráð vegna hæðarsetningar húsa og gatnahönnunar. 
  • Ráðgjöf og miðlun upplýsinga um byggingarmál til íbúa, hönnuða, starfsfólks bæjarins og annarra hagaðila. 
  • Skýrslugerð og aðkoma að skipulagsmálum, kortagrunnum og öðrum verkefnum sviðsins eftir því sem við á. 
  • Önnur verkefni að beiðni næsta yfirmanns. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í byggingafræði, arkitektúr, byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði. 
  • Reynsla af hönnun, mannvirkjagerð og úttektum er skilyrði. 
  • Löggilding hönnuðar samkvæmt lögum um mannvirki er skilyrði. 
  • Starfsleyfi byggingastjóra samkvæmt lögum um mannvirki er stór kostur. 
  • Yfirgripsmikil þekking á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og tengdum stöðlum er skilyrði. 
  • Reynsla af verkefnastjórnun.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur. 
  • Þekking á rafrænni byggingargátt, skoðunarhandbókum og sérhæfðum upplýsingakerfum sveitarfélaga er kostur. 
  • Góð almenn tölvu- og tækniþekking og hæfni til að setja fram upplýsingar og gögn á skýran hátt. 
  • Mjög góð samskiptahæfni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar