
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Þjórsársvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Við hjá Landsvirkjun leitum að liðsauka í öflugt teymi starfsfólks okkar á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, þar sem við rekum sjö vatnsaflsstöðvar. Starfið er fjölbreytt og spennandi en verkefni fela í sér viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja á svæðinu ásamt því að sjá um ástandsmælingar og greiningar á raf- og vélbúnaði.
Hæfni og þekking:
- Menntun á rafmagns- og/eða vélasviði t.d. rafvirkjun, rafiðnfræði, vélfræði.
- Þekking á viðhaldi búnaðar; véla-, vökva- og rafkerfa.
- Reynsla af raforkuvirkjum og iðnaði er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar.
- Góð tölvukunnátta.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga á starfinu.
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur13. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Véla- og tækjavörður
Tækniskólinn

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab
Textílmiðstöð Íslands

Production Specialist - Electric
DTE

Production Specialist - Mechanic
DTE

TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Bako Verslunartækni

Tæknimaður – rafvirki
Enercon

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

SÉRFRÆÐINGUR Í VIÐHALDSDEILD AKUREYRI
Mjólkursamsalan

Vélvirki á vélaverkstæði Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar

RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR
atNorth