Securitas
Securitas
Securitas

Tæknistarf á Akureyri

Securitas leitar af kraftmiklum einstaklingi til að slást í okkar frábæra tækniteymi á Akureyri.

Vegna aukinna umsvifa leitum við að liðsauka í okkar frábæra tækniteymi á Akureyri. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Ef þú...

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ert með Rafiðn eða sambærilega tæknimenntun (kostur en ekki skilyrði)
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku

...þá gætum við verið að leita að þér!

Í boði er fullt starf. Vinnutíminn er frá kl. 08:00-16:00 mánudaga - fimmtudaga og stytting vinnuvikunnar á föstudögum

Starfið hentar þeim sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Við hvetjum áhugasama til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með 19.október nk. og skulu umsóknir sendar inn hér.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Már Sigurðsson, deildarstjóri, í síma 580-7000.

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar