
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.

Öryggisstjóri (HSE Manager)
atNorth leitar að kraftmiklum og lausnamiðuðum öryggisstjóra, HSE Manager, í gagnaver félagsins á Reykjanesi. Starfið hentar einstaklingi með reynslu og menntun á sviði rafvirkjunar sem hefur brennandi áhuga á öryggismálum, heilsu og umhverfi, og vill taka virkan þátt í að efla örugga, faglega og ábyrga vinnustaðamenningu. HSE Manager gegnir lykilhlutverki í daglegri eftirfylgni með öryggisferlum, áhættumati, frávikum og úrbótum, auk þess að styðja starfsfólk og verktaka í að vinna samkvæmt lögum, reglum og bestu starfsvenjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðla að öryggi á vinnustaðnum og að unnið sé í samræmi við lög og reglugerðir
- Áætlanir, úrbætur og eftirfylgni í tengslum við frávik og verkferla
- Öryggiseftirlit og úttektir með áherslu á rafmagnsöryggi
- Leiða, þjálfa og styðja starfsfólk í tengslum við öryggismál, með áherslu á lág- og háspennu
- Áhættumat og flokkun áhættu
- Uppsetning, eftirlit og viðhald rafkerfa
- Verkefni tengd rafvirkjun.
- Vinna að stöðugum endurbótum og þróun öryggisferla og aðferða í nánu samstarfi við starfsfólk og verktaka
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla í rafvirkjun, rafmagnstæknifræði eða sambærilegu
- Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Haldbær reynsla af verkefnum tengdum öryggis-, heilsu- og umhverfismálum
- Þekking á lögum og regluverki í tengslum við öryggismál
- Mjög góð samskipta- og leiðtogahæfni
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Góð enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur14. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sjónarhóll 6, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Vegagerðin

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Rafvirki
Hitatækni ehf

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Öryggis og umhverfisfulltrúi
Jarðboranir

Gæði, fiskeldi og umbætur, er þetta eitthvað fyrir þig?
Arnarlax ehf

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Tæknistarf á Reykjanesi
Securitas