

Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Vegagerðin leitar að öflugum öryggisstjóra til að leiða og samræma öryggis- og vinnuverndarmál stofnunarinnar. Eitt af meginmarkmiðum Vegagerðarinnar er Öryggi að leiðarljósi: Við höfum öryggi og öryggismenningu að leiðarljósi í allri okkar starfsemi, jafnt fyrir notendur samgöngukerfisins, starfsfólk Vegagerðarinnar og samstarfsaðila hennar.
Öryggisráð er starfandi hjá Vegagerðinni og hefur það hlutverk að hafa eftirlit með framgangi öryggismála í allri starfseminni. Öryggisráð er leitt af forstjóra.
Öryggisstjóri starfar á skrifstofu forstjóra, leiðir og samræmir málaflokk öryggis og vinnuumhverfis. Öryggisstjóri stuðlar að því að skipulag og framkvæmd öryggis- og vinnuverndarmála sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Vegagerðarinnar.
- Ber ábyrgð á því að skipulag og verklag í öryggis- og vinnuverndarmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir.
- Öryggisstjóri er ráðgjafi og starfsmaður Öryggisráðs.
- Leiðir stefnumótun, áætlanagerð og markmiðasetningu í öryggis- og vinnuverndarmálum í samráði við Öryggisráð.
- Mótun, stýring og eftirfylgni verklags og verkefna í öryggis- og vinnuverndarmálum, skýrslugerð og árangursmælingar (KPI).
- Umsjón með starfsemi öryggisnefndar í samráði við formann nefndar.
- Ábyrgð á atvikaskráningagrunni og meðhöndlun skráninga ásamt eftirfylgni á úrbótum.
- Skipulagning þjálfunar og fræðslu til starfsmanna og stjórnenda í öryggis- og vinnuverndarmálum.
- Stuðla að virkri öryggis- og vinnuverndarmenningu.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Sérhæfð þekking og reynsla af stjórnun öryggis- og vinnuverndarmála.
- Reynsla af stefnumótun, innleiðingu verklags og markvissri eftirfylgni.
- Færni til að halda yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni.
- Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Framúrskarandi öryggisvitund, samskiptafærni og umbótasinnuð hugsun.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Íslenska
Enska
