

Rafvirkjar í tímabundið starf
Rafvirkjar í tímabundið verkefni á landsbyggðinni.
Við leitum að jákvæðum og kraftmiklum rafvirkjum til að taka þátt í uppbyggingu orkuinnviða utan höfuðborgarsvæðisins. Um tímabundið starf er að ræða á traustum og skemmtilegum vinnustað með spennandi áskorunum.
Um tímabundið starf er að ræða, með möguleika á áframhaldandi ráðningu að verkefni loknu.
- Uppsetning, viðgerðir og eftirliti með rafbúnaði.
- Þekkja mismunandi raflagnaefni og til hvers konar raftækja, rafvéla, iðntölvustýringa, stýribúnaðar og forritanlegra raflagnakerfa.
- Verkefni séu unnin skv. gæða- og öryggismarkmiðum
- Jákvæð og uppbyggileg samskipti við samstarfsmenn og viðskiptavini
- Verk sem geta verið unnin m.a á verkstæðum, í nýbyggingum, í farartækjum, í orkufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum og iðjuverum
- Þróa ferla og stöðugar umbætur
- Önnur tilfallandi verkefni
Draumaumsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Hluti verkefna er úti á landi og því þarf viðkomandi að geta unnið utan höfuðborgarsvæðisins.
- Reynsla af rafvirkjastörfum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góðir samstarfshæfileikar
- Ríka öryggisvitund
- Sjálfstæði í starfi og getur leiðbeint öðrum
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri
- Bílpróf
- Meiraprófs- og vinnuvélaréttindi er kostur
Kostir við að starfa hjá Rafal
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
Rafal ehf. leggur sérstaka áhersla á rekstrarþjónustu, endurbætur og uppbyggingu háspennu- og lágspennukerfa fyrir raforkuöflun og flutning, raforkudreifingu og raforkuiðnað. Þetta á einnig við um dreifikerfi fjarskiptafyrirtækja.
Gildi Rafal eru: Hugrekki, Ástríða, Samstaða og Traust
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Enska
Íslenska










