Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Starfsmaður í áhaldahús

Reykhólahreppur auglýsir eftir að ráða öflugan einstakling í teymi áhaldahúss. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum. Viðkomandi verður hluti af viðhaldsteymi sem sinnir fasteignum sveitarfélagsins og öðrum tilfallandi verkefnum hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umhirða og almennt viðhald á fasteignum sveitarfélagsins

Náin samvinna við umsjónarmann fasteigna.

Menntunar- og hæfniskröfur

Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegum verkefnum

Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt

Fagleg vinnubrögð

Góð samskiptahæfni

Tölvukunnátta kostur

Ökuréttindi skilyrði

Vinnuvélaréttindi og aukin ökuréttindi kostur

Fríðindi í starfi

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Um Reykhólahrepp

Í Reykhólahreppi búa um 250 íbúar og þar af um helmingur í þorpinu á Reykhólum. Reykhólahreppur er á sunnanverðum Vestfjörðum og honum tilheyra Flatey og aðrar Vestureyjar Breiðafjarðar. Svæðið státar af einstakri náttúrufegurð og fjölbreyttu fuglalífi. Reykhólahreppur býr við ríkar auðlindir jarðhita víða um sveitarfélagið og fjölda nýtanlegra gæða til lands og sjávar. Það býður upp á einstök lífsgæði í fallegu fjölskylduvænu umhverfi og fjölbreytt tækifæri til uppbyggingar og atvinnuþróunar.

Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi og framundan eru spennandi og áhugaverðir tímar í uppbyggingu og atvinnuþróun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu, t.d. á Króksfjarðarnesi, í Garpsdal og í uppbyggingu ferðaþjónustu um sveitarfélagið.

Auglýsing birt18. september 2026
Umsóknarfrestur2. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Maríutröð 5A, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar