
Titus
Við vinnum með leiðandi framleiðendum og leggjum áherslu á áreiðanleika, þjónustu og faglega ráðgjöf.
Titus ehf. var stofnað árið 2016 af hjónunum Kristínu Jónu Grétarsdóttur og Baldvini Bjarnasyni. Markmið fyrirtækisins er að auka lífsgæði fatlaðra og hreyfihamlaðra einstaklinga í samfélaginu með því að bæta aðgengi, efla ferlimál og stuðla að betra starfsumhverfi innan heilbrigðisþjónustu.
Frá upphafi hefur Titus lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og að veita lausnir sem nýtast bæði einstaklingum og stofnunum. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á tækjum, búnaði og lausnum fyrir heilbrigðisgeirann og hefur byggt upp öflugt vöruúrval sem þjónar fjölbreyttum þörfum viðskiptavina.
Titus býður einnig upp á alhliða þjónustu sem felur í sér ráðgjöf, uppsetningu, þjálfun og eftirfylgni. Fyrirtækið hefur á að skipa sérhæfðu starfsfólki með víðtæka reynslu á sínu sviði og rekur eigið þjónustusvið sem sér um viðhald og þjónustu á þeim vörum og búnaði sem fyrirtækið flytur inn og selur.
Allur lager Titusar er staðsettur í húsnæði fyrirtækisins og er aðgengilegur allan sólarhringinn. Með fagmennsku, þjónustulund og sérþekkingu leggur Titus áherslu á að vera traustur samstarfsaðili fyrir heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og einstaklinga um allt land.
Uppsetningar
Titus leitar að handlögnum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna uppsetningu og þjónustu á búnaði fyrir heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili. Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf í litlu og samheldnu fjölskyldufyrirtæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og þjónusta á búnaði hjá viðskiptavinum
- Viðhald og eftirfylgni
- Sjálfstæð vinna á vettvangi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hand- og verklagni
- Sjálfstæði og ábyrgð í starfi
- Heiðarleiki og áreiðanleiki
- Iðn- eða tæknimenntun er kostur en ekki skilyrði
Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Turnahvarf 6, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Iðmenntaður einstaklingur í eignarumsýsla
Eir hjúkrunarheimili

Rafvirki óskast sem fyrst!
RST Net ehf.

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Korpuskóli, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Klettaskóli

Þjórsársvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Tæknistarf á Akureyri
Securitas

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey

Verkamaður
Fagurverk