Golfklúbbur Klettar
Golfklúbbur Klettar
Golfklúbbur Klettar

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi

Golfklúbbur á höfuðborgarsvæðinu leitar að handlögnum og útsjónarsömum einstaklingi í 100% starf við húsumsjón og viðhald fasteigna.

Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf með sveigjanlegum vinnutíma. Starfið felur fyrst og fremst í sér umsjón og viðhald fasteigna en einnig ýmis verkefni sem tengjast rekstri golfklúbbsins

Helstu verkefni:

Daglegt eftirlit og umsjón með fasteignum.

Létt viðhald fasteigna og þjónusta.

Umsjón og eftirfylgni með stærri viðhaldsverkefnum.

Önnur tilfallandi verkefni við fasteignir.

Aðstoð við önnur verkefni tengd starfsemi klúbbsins.

Hæfniskröfur:

Reynsla af viðhaldi fasteigna, iðnaðarstörfum eða sambærilegum verkefnum

Iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur.

Vera mjög laghentur og útsjónarsamur.

Bílpróf er skilyrði og meirapróf er kostur.

Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og mikil þjónustulund.

Góð almenn tölvukunnátta.

Góð færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.

Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði.

Góð enskukunnátta er kostur.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum, sér hvað þarf að gera og getur unnið sjálfstætt. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, áreiðanlegur og tilbúinn að takast á við ólík verkefni sem geta komið upp í daglegum rekstri.

Starfið hentar sérstaklega vel einstaklingi sem hefur reynslu úr iðngrein, fasteignaviðhaldi eða sambærilegum störfum og vill fjölbreytt starf í skemmtilegu umhverfi.

Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GarðyrkjaPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HúsasmíðiPathCreated with Sketch.MálaraiðnPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.Sveinspróf
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar