

Læknir óskast til starfa á Grundarheimilunum
Laust er til umsóknar starf læknis á Grundarheimilunum. Starfið felur í sér læknisþjónustu við íbúa á heimilunum Grund og Mörk.
Starfið er fyrst og fremst unnið á dagvinnutíma, en lækni stendur einnig til boða að taka gæsluvaktir eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Grundarheimilin eru fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa um 700 manns. Lögð er áhersla á góðan starfsanda, faglegt samstarf og hvetjandi starfsumhverfi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks, þar sem vönduð þjónusta og fagmennska eru í forgrunni.
Læknisumsjón íbúa.
Mat, greining, meðferð og eftirlit sjúkdóma.
Lyfjarýni og endurskoðun lyfjameðferðar.
Yfirferð rannsóknarniðurstaðna og eftirfylgd.
Samstarf við aðstandendur og þátttaka í fjölskyldufundum eftir þörfum.
Þátttaka í teymisfundum og þróun starfseminnar.
Þátttaka í gæsluvöktum.
Íslenskt lækningaleyfi.
Sérfræðimenntun er kostur.
Góð íslenskukunnátta.
Hæfni til að starfa sjálfstætt og sýna frumkvæði.
Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til teymisvinnu.
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi.
Íslenska


