Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Sérfræðingur í geðlækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% - 50% starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.

Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (<www.hvest.is>).

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mat og greining á vanda skjólstæðinga

  • Þjónusta við skjólstæðinga á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum.

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu með sálfræðingum, félagsráðgjöfum og læknum í geðheilsuteymi HVest

  • Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, handleiðsla sérnámslækna í heimilislækningum.

  • Vinnuhlutfall 25-50%. Bæði vinnulotur á staðnum og fjarvinna.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í geðlækningum

  • Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð

  • Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar

  • Fagleg þekking, reynsla og hæfni á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragð.

Fríðindi í starfi

Aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks.

Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur13. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Torfnes, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar