

Aðstoðarmaður tannlæknis
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum starfskrafti sem hikar ekki við að taka ábyrgð og á gott með að vinna með fólki. Hér þarf mikla þjónustulund og skipulagshæfileikar eru mikill kostur í þessu starfi. Gott vald á íslensku skilyrði.
Opnunartími stofunnar er 8:30-16:15 mánudag til fimmtudaga og 8:30-14:15 á föstudögum.
Um er að ræða fullt starf og viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið er fjölbreytt en felur í sér þetta helst:
- Þjónusta tannlækna inn við stól
- Sótthreinsun
- Yfirsýn yfir innkaup og lagerstöðu
- Einföld vinna í munnholi eins og myndataka
- Samfélagsmiðlar
- Símsvörun
- Móttaka og afgreiðsla skjólstæðinga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, 20 ára+
- Tanntækni- eða heilbrigðismenntun eða starfsreynsla af vinnu á tannlæknastofu kostur en ekki skilyrði
- Vel talandi og skrifandi á íslensku
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Rík þjónustulund - reynsla af þjónustu- eða afgreiðslustörfum kostur
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðasmári 14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Landspítali

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Shipping and Logistics Coordinator
JBT Marel

Miðlægt eldhús í Reykjanesbæ
Skólamatur

Starfsmaður í dagdvöl aldraðra í Sunnuhlíð
Sunnuhlíð

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Starfsmaður í lyfjaskömmtun
Borgar Apótek

Aðstoðarmaður forstjóra
Intellecta