Signa ehf
Signa ehf
Signa ehf

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar

Signa leitar að sjálfstæðum og vandvirkum starfsmanni í fjölbreytt verkefni við framleiðslu og merkingar.

Helstu verkefni eru skurður og frágangur á límfilmum, uppsetning á límfilmum og prentuðu efni ásamt öðrum skapandi verkefnum.

Þetta er fjölbreytt starf þar sem engir tveir dagar eru eins og hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af verklegri vinnu og leggur metnað í vönduð vinnubrögð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Álím­ing og uppsetning á límfilmum og prentuðu efni.
  • Skurður, frágangur og undirbúningur merkinga fyrir uppsetningu.
  • Ábyrgð á vönduðum frágangi verkefna.
  • Samvinna við aðra starfsmenn um framleiðslu og uppsetningu
Við bjóðum:
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni við framleiðslu og merkingar.
  • Tækifæri til að efla þekkingu og færni á sviði prentunar og uppsetningar.
Um Signa

Signa er vaxandi fyrirtæki með víðtæka reynslu af prentun, skiltagerð, bílamerkingum og annari sérsmíði. Við sinnum fjölbreyttum verkefnum við framleiðslu og uppsetningu og leggjum áherslu á fagmennsku, vandaðan frágang og persónulega þjónustu. 

Við leitum að öflugum liðsfélaga sem vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og vaxa með okkur. Ef starfið höfðar til þín hvetjum við þig til að senda inn umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Linda Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri, í netfanginu [email protected].

Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarflöt 19-o
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar