

Starfsfólk óskast í hlutastarf við umönnun
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing leitar að öflugu starfsfólki hlutastarf (kvöld- og helgarvinna) við umönnun.
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.
Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Styðja, leiðbeina og hvetja þjónustuþega
- Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir
- Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi
- Samskipti við aðstandendur þjónustuþega
- Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Enska
Íslenska










