

Ræstitækni/Motta.is leitar að sölumanni
Ræstitækni/Motta.is leitar að sölumanni sem sérhæfir sig í sölu á úrvals gólfmottum, hefðbundnum eða sérsniðnum og gerir þjónustusamninga við fyrirtæki, stofnanir og húsfélög.
Motta.is er vörumerki í eigu Ræstitækni ehf.
Um er að ræða spennandi starf sem hentar mjög vel fyrir söludrifin og lausnamiðaðan einstakling.
Við leitum að einstaklingi í fullt starf sem að getur unnið sjálfstætt og hefur reynslu af fyrirtækjamarkaði.
Í starfinu felst að sækja ný viðskipti og taka virkan þátt í áframhaldandi vexti og uppbyggingu vörumerkisins.
Í boði eru föst laun, morgunmatur og fl.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í töluðu og rituðu máli.
Ræstitækni er góður og fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er rík áhersla á góðan starfsanda, jákvæð samskipti og gott vinnuumhverfi.
Sala og ráðgjöf til fyrirtækja, húsfélaga og stofnana.
Þarfagreining, ráðgjöf, tilboðsgerð og eftirfylgni.
Myndun nýrra viðskiptatengsla.
- Reynsla af sölustörfum
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar
- Drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
- Mjög góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
- Bílpróf er skilyrði
Árangurstengdir bónusar, morgunmatur, ýmis námskeið og unnið er til hádegis á föstudögum.
Íslenska
Enska










