Gatula ehf.
Gatula ehf.
Gatula ehf.

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri

Gatula leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum sölufulltrúa til að kynna og selja stafrænar lausnir okkar til fyrirtækja á Íslandi. Þú hefur samband við nýja viðskiptavini, bókar fundi, kynnir lausnir og fylgir sölutækifærum eftir til samnings. Við leitum að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og drifkraft. Reynsla af sölu til fyrirtækja er kostur.

Í boði er söluþóknun sem nemur hlutfalli af eigin sölu, samkvæmt nánara samkomulagi. Sá sem sýnir góðan árangur og leiðtogahæfni hefur möguleika á að taka við stöðu sölustjóra og leiða uppbyggingu söluteymis Gatula.

Sendu okkur ferilskrá og stutta kynningu á þér og reynslu þinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leita að nýjum viðskiptavinum og hafa frumkvæði að samskiptum við fyrirtæki.
  • Bóka og sækja sölufundi, greina þarfir viðskiptavina og kynna lausnir Gatula.
  • Gera tilboð, fylgja þeim eftir og ganga frá samningum.
  • Byggja upp og viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
  • Halda utan um sölutækifæri, skrá samskipti og vinna að settum sölumarkmiðum.
  • Taka þátt í að þróa söluferla og móta sölustarf Gatula með stjórnendum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Reynsla af sölustörfum, sérstaklega sölu til fyrirtækja, er kostur.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri.
  • Skipulögð vinnubrögð og góð eftirfylgni.
  • Áhugi á tækni og hæfni til að kynna stafrænar lausnir á skýran hátt.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, en söluhæfni og reynsla vega þyngra en formleg menntun.
Fríðindi í starfi
  • Söluþóknun sem tengist beint eigin sölu og árangri.
  • Tækifæri til að vaxa í starfi og taka við stöðu sölustjóra.
  • Sjálfstæði í starfi og tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu sölustarfs.
  • Náið samstarf við stofnendur og stjórnendur Gatula.
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar