

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel
Verdi Travel leitar að drífandi, skipulögðum og tæknilega sterkum einstaklingi til að starfa á sölu- og markaðssviði fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér sölu og tilboðsgerð fyrir hópaferðir, verkefnastjórnun, markaðssetningu og þróun nýrra viðskiptatækifæra. Sérstök áhersla verður á uppbyggingu og vöxt hópaferðadeildar Verdi Travel.
Helstu verkefni
- Sala, skipulagning og tilboðsgerð fyrir hópaferðir og stærri verkefni.
- Öflun nýrra viðskiptavina og þróun nýrra viðskiptatækifæra.
- Eftirfylgni með söluverkefnum frá fyrstu fyrirspurn til framkvæmdar.
- Hugmyndavinna og framkvæmd markaðsherferða.
- Gerð og hönnun kynningar- og markaðsefnis.
- Umsjón með og uppfærsla á heimasíðu og gagnagrunnum.
- Notkun stafrænna lausna til að styðja við sölu- og markaðsstarf.
- Þróun vinnuferla til að auka skilvirkni og árangur.
Leitað er að einstaklingi með reynslu af sölu og þjónustu, góða tölvu- og tæknikunnáttu og sterka færni í Microsoft 365, sérstaklega Excel og Outlook. Kunnátta í Canva og vefumsjónarkerfum er kostur, sem og reynsla af gervigreindarlausnum.
Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður, frumkvöðull, skipulagður, nákvæmur og lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og reynsla af ferðaþjónustu er kostur.
Íslenska
Enska










