Fjölprent ehf
Fjölprent ehf

Sölumaður í skiltagerð

Fjölprent leitar að öflugum og þjónustulunduðum sölumanni í skiltagerð.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, sölu og fjölbreyttum verkefnum. Starfið felst í ráðgjöf og sölu á skiltum og merkingarlausnum til fyrirtækja og einstaklinga.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er lipur í samskiptum og hefur gaman af fólki
  • Hefur áhuga á sölu og þjónustu
  • Er sjálfstæður, skipulagður og lausnamiðaður
  • Hefur metnað og drifkraft
  • Hefur áhuga á hönnun, skiltagerð eða tengdum verkefnum

Reynsla af sölu er kostur en ekki skilyrði.

Starfshlutfall er sveigjanlegt og möguleiki er á 50% starfi fyrir réttan aðila.

Hjá Fjölprent færðu tækifæri til að vinna í skapandi og fjölbreyttu umhverfi, með skemmtileg verkefni og fjölbreyttan hóp viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við viðskiptavini og sala
  • Ráðgjöf um skilti, merkingar og lausnir
  • Tilboðsgerð og eftirfylgni
  • Samskipti við hönnun og framleiðslu
  • Umsjón með verkefnum frá fyrirspurn að afhendingu
  • Öflun nýrra viðskiptavina og tækifæra
  • Önnur tilfallandi störf
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðlingabraut 14, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar