

Innrammari / sölumaður
Ertu laghent/ur og með auga fyrir smáatriðum?
Innrammarinn & Prentagram leita að vandvirkum, kraftmiklum og áreiðanlegum liðsfélaga í fjölbreytt starf við samsetningu myndaramma, frágang pantana og dagleg verkefni í verslun og verkstæði.
Hjá okkur færðu að vinna með höndunum, læra nýja hluti og sjá áþreifanlegan árangur af vinnunni þinni. Við erum fámennur en góður vinnustaður á Rauðarárstíg 41 í Reykjavík þar sem góð samvinna, þjónusta og vönduð vinnubrögð skipta miklu máli.
Helstu verkefni eru meðal annars:
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini, meðal annars ráðgjöf vegna sérsmíðaðra ramma utan um listaverk, móttaka prentpantana og almenn afgreiðsla í verslun.
- Samsetning og frágangur ljósmynda og sérsmíðaðra ramma fyrir listaverk, málverk, ljósmyndir og fleira.
- Frágangur og pökkun pantana, meðal annars ljósmyndaprents, til afhendingar.
- Önnur tilfallandi verkefni í daglegum rekstri.
Vinnan fer fram standandi allan vinnudaginn.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Er vandvirkur, laghentur og nákvæmur.
- Hefur gott auga fyrir smáatriðum.
- Er stundvís og áreiðanlegur.
- Er skipulagður og getur unnið sjálfstætt.
- Á auðvelt með að vinna með öðrum og er jákvæður í samskiptum.
- Hefur áhuga á að læra og takast á við fjölbreytt verkefni.
- Er íslenskumælandi og nikótínlaus.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði. Áhugi, vandvirkni og vilji til að læra skipta mestu máli og við hvetjum þig til að sækja um þótt þú sért að stíga þín fyrstu skref á vinnumarkaði.
Starfið hentar öllum kynjum og leitum við af einstaklingum 20 ára og eldri.
Um er að ræða fullt starf og er vinnutími frá 10 til 18.
Íslenska










