Samhentir
Samhentir
Samhentir

Innkaupa- og tollafulltrúi

Samhentir leita að reyndum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi til að sinna tollafgreiðslu, innkaupum og tengdum verkefnum. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér tollun innflutningssendinga, bókun útflutnings, meðhöndlun tollskjala og flokkun vara samkvæmt tollskrá.

Viðkomandi mun jafnframt vinna náið með véladeild fyrirtækisins og aðstoða við pöntun, móttöku og reikningsfærslu varahluta. Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni og nýtur þess að eiga samskipti við birgja, flutningsaðila og samstarfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tollafgreiðsla innflutningssendinga
  • Bókun og frágangur útflutningssendinga
  • Yfirferð og skráning toll- og flutningsskjala
  • Tollflokkun vara og meðhöndlun tollskrárnúmera
  • Samskipti við flutningsaðila, birgja og önnur samstarfsfyrirtæki
  • Innkaup, pöntun vara og eftirfylgni pantana
  • Náið samstarf við véladeild vegna innkaupa og umsýslu varahluta
  • Pöntun, móttaka og skráning varahluta
  • Bókun og yfirferð birgjareikninga, meðal annars vegna varahlutakaupa
  • Vinna í Navision og öðrum tengdum kerfum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af tollafgreiðslu er nauðsynleg
  • Góð þekking á tollkerfum, tollskrá og tollflokkun vara
  • Reynsla af Navision er mikill kostur
  • Reynsla af innkaupum, vörumóttöku og bókun reikninga er kostur
  • Reynsla af umsýslu varahluta eða samstarfi við véladeild er kostur
  • Góð tölvukunnátta og færni í Excel
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og geta til að vinna undir álagi
Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. nóvember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar