
Límtré Vírnet ehf
Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki og starfsstöðvar þess byggja á áratuga löngum framleiðsluferlum. Starfsfólk okkar er einnig með áratuga starfsreynslu við framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir byggingariðnaðinn á Íslandi.
Starfsstöðvar okkar eru á þremur stöðum á landinu. Höfuðstöðvar okkar eru á Lynghálsi, þar sem innkaupadeild, fjármálastjóri og byggingadeild er starfrækt ásamt afgreiðslu á helstu lagervörum fyrirtækisins. Í Borgarnesi er framleitt valsað stál og ál til klæðninga utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á milliveggjastoðum úr stáli.
Í Borgarnesi eru einnig reknar blikksmiðja og járnsmiðja.
Á Flúðum er svo framleiðsla á límtré og steinullareiningum.
Söludeildir fyrirtækisins er starfræktar á Lynghálsi 2 í Reykjavík og á Borgarbraut 74 í Borgarnesi.
Límtré Vírnet óskar eftir sölumanni í Reykjavík
Límtré Vírnet óskar eftir öflugum og reynslumiklum sölumanni til starfa á söludeild fyrirtækisins að Lynghálsi 2 í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og tilboðsgerð til viðskiptavina, m.a. á þakrennum, bárustáli, límtré, yleiningum, járnabindivörum o.fl.
- Eftirfylgni með tilboðum
- Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna
- Ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölustörfum er æskileg
- Menntun eða reynsla úr byggingariðnaði er kostur
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
Gott mötuneyti á staðnum
Frábær starfsandi
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BlikksmíðiHandlagniHreint sakavottorðIðnfræðingurMeistarapróf í iðngreinÖkuréttindiSmíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Avians leitar að rafeindavirkja/tæknimanni til starfa
Avians

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Tæknimaður
Hegas ehf.

Brafa leitar af tæknisnillingi
brafa

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek

Starfsmaður í blikksmiðju / Workshop employee
Norðurstjarnan ehf.

Rafvirki/Rafeindavirki í Tæknideild Nortek á Akureyri.
Nortek

Áreiðanleikasérfræðingur / Reliability Engineer
Alcoa Fjarðaál

Rafvirki eða rafvirkjanemi
Rafsveinn ehf

Ert þú týpan sem elskar að leysa tæknileg vandamál?
Raförninn