
Hagvangur
Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 8 sérfræðingar við ráðningar og stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og hefur þjónustað hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf og margt fleira.
Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breitt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af. Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins.

Notendaþjónusta í UT
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til starfa á upplýsingatæknisviði hjá öflugu fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felur í sér tæknilega aðstoð og þjónustu við notendur, uppsetningu og viðhald vél- og hugbúnaðar, þátttöku í þróun og umbótum á upplýsingatæknilausnum auk annarra fjölbreyttra verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu sem nýtist í starfi
- Hefur áhuga á upplýsingatækni, notendaþjónustu og kerfisrekstri
- Er þjónustulundaður, skipulagður og sýnir frumkvæði
- Á auðvelt með samskipti og teymisvinnu
- Hefur metnað til að læra, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og þróast í starfi
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur17. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Senior Software Engineer
Laki Power

Robotics Software Engineer
Laki Power

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

CapEx PMO Systems Specialist
Alvotech hf

Senior Linux Systems Engineer
1984 ehf

Senior Storage Engineer – Ceph / Distributed Storage
1984 ehf

Kerfisstjóri
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf