
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í upplýsingaöryggi í Kerfisrekstri á Upplýsingatæknisviði Landsbankans.
Kerfisrekstur ber ábyrgð á öruggum og traustum rekstri grunnkerfa bankans. Meginhlutverk deildarinnar er að hámarka gæði og uppitíma tölvukerfa og tryggja öruggt aðgengi viðskiptavina og starfsfólks að kerfum og gögnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur og eftirlit með öryggis- og varnarkerfum
- Greining á netógnum, veikleikum og öryggisatvikum
- Viðbrögð við netöryggisatvikum og eftirfylgni með úrbótum
- Gerð og viðhald áhættumats og verklags
- Öryggisrýni, ráðgjöf og miðlun þekkingar í samstarfi við innri og ytri sérfræðinga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði upplýsingatækni, kerfisreksturs, netöryggis eða tengdu sviði
- Áhugi á upplýsingaöryggi og vilji til að þróast á því sviði
- Hæfni til að greina vandamál og vinna markvisst að lausnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri hæfni í samskiptum og miðlun þekkingar
- Reynsla af öryggislausnum, veikleikastýringu eða öryggisvöktun er kostur
Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

CapEx PMO Systems Specialist
Alvotech hf

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Business Central forritari
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Senior Network Engineer – Datacenter & Cloud Networking
1984 ehf

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring
Íslandsbanki

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf

AI Engineer
50skills

AI Solutions Engineer
atNorth