
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Sérfræðingur í Grunnkerfum
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings í Grunnkerfum í Kerfisrekstri á Upplýsingatæknisviði Landsbankans.
Kerfisrekstur ber ábyrgð á öruggum og traustum rekstri grunnkerfa bankans. Meginhlutverk deildarinnar er að hámarka gæði og uppitíma tölvukerfa og tryggja öruggt aðgengi viðskiptavina og starfsfólks að kerfum og gögnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging, rekstur og sjálfvirknivæðing Kubernetes umhverfis
- Umsjón og rekstur Linux kerfa
- Uppbygging öruggra og sjálfvirkra kerfa
- Sjálfvirkt eftirlit og vöktun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af Linux kerfum
- Þekking á sjálfvirknivæðingu í rekstrarumhverfum
- Þekking eða áhugi á Kubernetes og rekstri gámalausna
- Háskólamenntun í tölvunarfræði eða á sambærilegu sviði er kostur
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)


