

Laust starf aðstoðarkonu í tímavinnu/afleysingu
Ég heiti Kolbrún og er að leita að aðstoðarkonu í tímavinnu/afleysingu í teymið mitt ef forföll koma upp hjá aðstoðarkonum í föstu starfshlutfalli. Starfið gæti hentað sjálfstætt starfandi manneskju sem hefur sveigjanleika til að taka vaktir ef vantar.
Í hverju felst starfið?
Starf aðstoðarkonu felst í að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs, inni á mínu heimili og úti í samfélaginu. Ég er hreyfihömluð og nota hjólastól og er með sérútbúinn bíl sem aðstoðarkonur mínar aka fyrir mig. Umsækjandi þarf því að vera með bílpróf og hafa reynslu af því að aka bíl.
Vaktir eru breytilegar, dag, kvöld, helgar og nætur á hvíldarvakt (sofandi vakt). Sér herbergi er fyrir aðstoðarfólk þar sem það getur dregið sig í hlé, hefur vinnuaðstöðu og sefur á hvíldarvakt yfir nótt. Vaktir geta verið frá 12-24 tíma langar.
Hugmyndafræði
NPA miðstöðin er vinnuveitandi aðstoðarfólks og eru laun samkvæmt kjarasamningi Eflingar og NPA miðstöðvarinnar. Aðstoðarfólk í NPA þjónustu vinnur í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Þetta þýðir að fatlað fólk stýrir eigin aðstoð; hvaða verk eru unnin, hver framkvæmir þau, hvar og hvenær aðstoðin fer fram. Ég hef verið með NPA aðstoð frá 2012 og er einn af stofnendum NPA miðstöðvarinnar.
Starf aðstoðarkonu felst í að aðstoða mig þar sem ég er í hlutverki verkstjórnanda og leiðbeini aðstoðarfólki mínu með að aðstoða mig við ýmis verkefni.
Á meðal verkefna eru aðstoð við að klæðast, fara í bað, elda, sinna heimilstörfum, versla, sinna erindum og störfum tengt menningu og listum.
Vinnustaður aðstoðarfólks er mitt heimili og þar sem ég er hverju sinni.
Mikilvægt er að aðstoðarfólk eigi auðvelt með að lesa í aðstæður og geti dregið sig í hlé.
Ég kýs að hafa aðstoðarfólk sem er ,,faglegt“ fremur en að það virki eins og vinkona mín. Aðstoðarfólk er bundið þagnarskyldu og því er trúnaður og traust lykilatriði.
Umsækjandi þarf að hafa bílpróf og akstursreynslu.
Tala íslensku og vera orðin 22 ára og reyklaus.
Líkamlega hraust og minnug þar sem margt þarf að muna.
Vandvirk og verklagin í höndunum.
Geti tekið leiðsögn og sé jákvæð í samskiptum.
Sýni frumkvæði og ábyrgð á verkefnum sem aðstoðarfólki er falið.
Íslenska










