
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfsfólk óskast á íbúðarkjarna
Íbúðakjarninn við Fossvogsbrún er skemmtilegt og fjölbreytt heimili fyrir fatlað fólk.
Við leitum af fólki, 18 ára og eldra sem vill koma til liðs við okkur í Fossvogsbrún.
Viðkomandi þarf að geta unnið allar tegundir vakta, sérstaklega dagvaktir, þar sem veitt er sólarhringsþjónusta.
Veittur er einstaklingsmiðaður stuðningur jafnt innan sem utan heimils og unnið er út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeinir og aðstoðar íbúa kjarnans í samræmi við verklag og þjónustuáætlanir.
- Veitir íbúum kjarnans einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs.
- Hvetur til sjálfshjálpar og eflir félagslega virkni.
- Aðstoðar við almennt heimilishald.
- Stuðlar að samfélagsþátttöku og auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
- Starfið getur verið líkamlega krefjandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tveggja ára nám á framhaldsskólastigi og/eða reynsla sem nýtist í starfi æskilegt.
- Góð íslenskukunnátta.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki kostur.
- Stundvísi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
- Framtaksemi og frumkvæði í starfi.
- Hæfni til að starfa undir álagi.
- Hæfileikar til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
- Almenn ökuréttindi.
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt17. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fossvogsbrún 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkyndihjálpStundvísiSveigjanleikiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi í Vinnu og virkni
Ás styrktarfélag

Viltu vera túlkur?
Túlka- og þýðingarmiðstöð Íslands

Þjónustustjóri(Service Manager) Óskast til starfa hjá iClean
iClean ehf.

Teymisstjóri í sértækri búsetu - leiðtogahlutverk sem skiptir máli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vertu með okkur í að byggja lager framtíðarinnar
Hekla

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Aðstoðarmaður óskast í hlutastarf á Hellu
NPA Setur Suðurlands ehf.

Vaktavinna í neyðarskýli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær

Afgreiðslustarf í Lyfjavali Reykjanesi
Lyfjaval

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta