Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vaktavinna í neyðarskýli

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að starfsfólki til starfa neyðarskýlum Reykjavíkurborgar. Unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Hlutverk og meginmarkmið neyðarskýlanna er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundið skjól og viðeigandi aðstoð. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum dvalargesta á heildrænan og einstaklingsmiðaðan hátt. Hugmyndafræði skaðaminnkunar skal vera höfð að leiðarljósi í þjónustu við gesti neyðarskýla Reykjavíkurborgar.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka gesta neyðarskýlanna
  • Veita gestum félagslegan stuðning
  • Umönnun og eftirlit
  • Framleiðsla matar og þrif
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við notendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Reynsla og/eða áhugi á vinnu með karlmönnum með fjölþættan vanda
  • Þekking og/eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta B-2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grandagarður 1A, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar