Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða glaðlynda og áhugasama starfsmenn í skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Starfshlutfall er 35% í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir aðra hvora helgi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun desember.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn.

Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða fötluð börn við athafnir daglegs lífs og umönnun
  • Skipuleggja afþreyingu og virkja börn og ungmenni til ýmissa tómstunda.
  • Samskipti við foreldra
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Einlægur áhugi á málefnum fatlaðra barna
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf
  • Hugmyndaauðgi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Starfið krefst góðs líkamslegs atgervis

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Már Bogason, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2026

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Svöluhraun 19, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar