

Við leitum að öflugum liðsfélaga!
Hefur þú áhuga á mannslíkamanum, heilsu og því að hjálpa fólki?
Kírópraktorstöðin leitar að jákvæðum, áreiðanlegum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa.
Við erum að auka þjónustu okkar með nýjum Back on Trac meðferðabekkjum og leitum að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á mannslíkamanum og áhuga á að vinna í heilsutengdu umhverfi.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem megináherslan verður á umsjón með nýju meðferðabekkjunum, þjónustu við skjólstæðinga og þátttöku í daglegri starfsemi Kírópraktorstöðvarinnar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Viltu vera hluti af öflugu teymi sem hefur það að markmiði að bæta heilsu og lífsgæði fólks?
Þá viljum við heyra frá þér!
📍 Kírópraktorstöðin – Sogavegur 69, 108 Reykjavík.
📩 Frekari upplýsingar eða spurningar má senda á [email protected].
-
Umsjón með Back on Trac meðferðabekkjum.
-
Móttaka, leiðbeiningar og aðstoð við skjólstæðinga.
-
Eftirfylgni og góð þjónusta við skjólstæðinga.
-
Aðstoð við dagleg verkefni og almenna starfsemi stofunnar eftir þörfum.
-
Samstarf við kírópraktora og annað starfsfólk stöðvarinnar.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Hefur viðurkennda menntun sem felur í sér þekkingu á líffærafræði, lífeðlisfræði eða starfsemi mannslíkamans.
-
Hefur einlægan áhuga á heilsu og vellíðan.
-
Er glaðlegur, jákvæður og á auðvelt með mannleg samskipti.
-
Er ábyrgur, skipulagður og áreiðanlegur.
-
Er sveigjanlegur og tilbúinn að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.
-
Hefur metnað til að læra, þróast og vera hluti af öflugu teymi.
Íslenska
Enska










