Forréttindi
Forréttindi

NPA aðstoðarkona í fullt starf!

Ertu með frumkvæði, drifkraft og sveigjanleika?

Þá er ég að leita að þér!

Ég er að leita að NPA aðstoðarkonu.

Ég er fertug hreyfihömluð kona, búsett í Hafnarfirði með syni mínum og sambýlismanni. Ég starfa fyrir baráttusamtök fatlaðra kvenna og kvàr.

Ég þarf aðstoð við flest allt sem fylgir því að vera manneskja og taka virkan þátt í samfélaginu. Ég þarf m.a. aðstoð við persónulegt hreinlæti, heimilisstörf, eldamennsku og við að komast á milli staða.

Um er að ræða 100% starf eða 6 sólarhringsvaktir í mánuði, mikilvægt er að geta unnið á virkum dögum og sýna sveigjanleika með tilhögun vakta.

Starfið er þægilegt meðfram öðrum verkefnum þar sem um er að ræða lengri og færri vaktir en hefðbundið er. Þ.e. sólarhringsvaktir sem fela í sér sofandi næturvaktir.

Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf, tala íslensku eða ensku, vera sveigjanlegir, tilbúnir í góða samvinnu og opnir fyrir nýrri reynslu. Einnig að vera reyk- og rafrettulaus og með hreint sakavottorð.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið aðlögun í nóvember og hafið störf í lok þess mánaðar.

Auglýsing birt19. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Drekavellir 26, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar