Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Aðstoðarmaður á endurhæfingardeild - Hrafnista Hraunvangur

Hrafnista Hraunvangur í Hafnarfirði óskar eftir að ráða skipulagðan og sjálfstæðan einstakling í stöðu aðstoðarmanns í endurhæfingarteymi. Starfshlutfall er 80%. Viðkomandi kemur til með að starfa undir leiðsögn sjúkra- og iðjuþjálfa. Vinnan er fjölbreytt og er þannig að styrkleikar og áhugasvið fólks geta haft mikil áhrif á starfið og verkefnin.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða iðju- og sjúkraþjálfara
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Framfylgja þjálfunaráætlun íbúa
  • Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa við handverk og félagsstarf
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Færni og áhugi á málun og handavinnu
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námsstyrkja.
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur6. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar