
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Iðjuþjálfi - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa í endurhæfingardeild.Starfshlutfall er 80 - 100%.
Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni.Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu.
Á Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
- Meta færni, veita færniþjálfun og ráðgjöf
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild
- Fræðsla og hópastarf til íbúa og aðstandenda
- Þátttaka í hópastarfi
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
- Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur með strætó
- Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námsstyrkja.
- Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur6. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (8)

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Iðjuþjálfi óskast til starfa
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Starfsmaður óskast til starfa í iðju og dagþjálfun
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali