Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Iðjuþjálfi óskast til starfa

Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing og Heilsuvernd Vífilsstaðir óska eftir að ráða iðjuþjálfa til starfa. Starfið felur með sér að móta og leiða áherslur tengt iðju- og félagsstarfi í tveimur rekstrareiningum Heilsuverndar. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.

Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu og Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðla að aukinni vellíðan og lífsgæðum
  • Aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagsleg örvun og stuðningur í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði notenda og viðhalda sjálfstæði þeirra
  • Framkvæmir og skipuleggur Rai-möt
  • Veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks
  • Starfinu fylgja mikil samskipti við skjólstæðinga, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í iðjuþjálfun og starfsleyfi
  • Áhugi á þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og reynsla af því sviði er kostur.
  • Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Þekking og reynsla af Rai-mati er kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar