Kosmetik Snyrtistofa & Heildverslun
Kosmetik Snyrtistofa & Heildverslun
Kosmetik Snyrtistofa & Heildverslun

Fjölbreytt starf fyrir snyrtifræðing!

Fjölbreytt starf með tækifæri til sérhæfingar og kennslu hjá Elleebana á Íslandi.

Kosmetik leitar að metnaðarfullum snyrtifræðingi sem vill efla fagþekkingu sína og taka virkan þátt í meðferðum, þjónustu við fagfólk og uppbyggingu námskeiða.

Kosmetik rekur snyrtistofu og heildsölu og er dreifingaraðili Elleebana á Íslandi, ásamt fleiri vörumerkjum fyrir fagfólk. Starfið sameinar því meðferðarvinnu á stofu og verkefni á bak við sölu, fræðslu og faglegan stuðning við snyrtifræðinga og stofur um land allt.

Við leitum að einstaklingi sem hefur sérstakan áhuga á augnhára- og augabrúnameðferðum og vilja til að þróast í hlutverk Elleebana-leiðbeinanda (trainer). Markmiðið er að byggja upp þá sérþekkingu og færni sem þarf til að kenna öðru fagfólki og taka þátt í áframhaldandi þróun námskeiðahalds hjá Kosmetik. Undirbúningurinn felst í markvissri þjálfun, reynslu af meðferðum og því að uppfylla viðeigandi kröfur Elleebana til leiðbeinenda.

Hjá Kosmetik gefst tækifæri til að nýta snyrtifræðimenntunina á fjölbreyttan hátt, öðlast sérþekkingu á Elleebana og hafa raunveruleg áhrif á þróun þjónustu og fræðslu. Unnið er í nánu samstarfi við eiganda, með svigrúm fyrir hugmyndir, frumkvæði og aukna ábyrgð.

Starfshlutfall er 50–100% eftir samkomulagi.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynning þar sem fram kemur reynsla, áhugasvið og hvað viðkomandi sækist eftir í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

-Snyrtimeðferðir og ráðgjöf á stofu, með áherslu á Elleebana.

-Þjónusta og vöruráðgjöf til viðskiptavina heildsölunnar.

-Umsjón með lager, tiltekt pantana og afgreiðsla.

-Undirbúningur námskeiða og þátttaka í fræðslu.

-Samstarf við eiganda um daglegan rekstur, kynningar og markaðsefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

- Snyrtifræðingur

- Gilt bílpróf.

- Reynsla af Lash Lift og Brow Lamination er kostur en ekki skilyrði.

- Faglegur metnaður og vönduð vinnubrögð.

- Sjálfstæði, frumkvæði og vilji til að taka ábyrgð og fylgja verkefnum eftir.

- Skipulagshæfni, áreiðanleiki og góð færni í samskiptum.

- Færni til að tala fyrir framan hóp og miðla upplýsingum á skýran og faglegan hátt.

- Áhugi á að leiðbeina öðru fagfólki, auka eigin þekkingu og vaxa í starfi til lengri tíma.

Fríðindi í starfi

-Fagleg þjálfun og fræðsla um vörur og meðferðir.

-Tækifæri til sérhæfingar og undirbúnings fyrir hlutverk Elleebana-leiðbeinanda.

-Svigrúm til að þróa eigin hugmyndir og taka aukna ábyrgð í starfi.

Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. janúar 2027
Laun (á mánuði)1 - 2 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar