

Verkefnafulltrúi í skaðaminnkunar verkefni - Frú Ragnheiður 50%
Verkefnafulltrúi í skaðaminnkunar verkefni Rauða krossins – Frú Ragnheiður (afleysingar vegna fæðingarorlofs)
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að duglegum og samviskusömum einstaklingi í starf sem verkefnafulltrúi í Frú Ragnheiði, með mögulegri aðstoð í Ylju.
Viðkomandi mun starfa í öflugu teymi sem vinnur að því að veita skaðaminnkandi þjónustu og sinnir tveimur verkefnum Frú Ragnheiði og Ylju.
Hvað er Frú Ragnheiður?
Frú Ragnheiður er skaðaminnkunarúrræði á vettvangi sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð. Þjónustan er lágþröskulda og veitt í nærumhverfi einstaklinga með sérútbúnum bíl, þar sem boðið er upp á lágþröskulda heilbrigðisþjónustu, skaðaminnkandi þjónustu og sálfélagslegan stuðning.
Hvað er Ylja?
Viðkomandi gæti einnig veitt aðstoð í Ylju, fyrsta örugga rými til að nota vímefni á Íslandi. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta notað vímefni í æð og reykt ópíóíða og/eða örvandi efni undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks og með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum. Neyslurými hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning og bætt heilsu einstaklinga sem nota vímuefni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stuðningur og eftirfylgd með sjálfboðaliðum og skipulag vakta fyrir sjálfboðaliða í Frú Ragnheiði
- Umsjón með daglegri starfsemi Frú Ragnheiðar
- Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
- Fræðsla, kynning og þjálfun nýrra sjálfboðaliða
- Skráning og greining gagna fyrir mælikvarða og skýrslugerð
- Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
- Möguleg aðstoð í Ylju eftir þörfum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að:
- Menntun sem nýtist í starfi (t.d. félagsvísindi, félagsráðgjöf, geðheilbrigði) er kostur
- Þekking eða reynsla af skaðaminnkun, félagslegum úrræðum eða vinnu með fólki með fjölþættan vanda
- Góð samskiptahæfni, jákvætt hugarfar og frumkvæði
- Umburðalyndi og virðing fyrir fólki sem notar vímuefni
- Skipulagshæfni og reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur
Hvað býður Rauði krossinn upp á?
🚴 Samgöngustyrkur – Stuðningur við vistvænar samgöngur
🏋️ Líkamsræktarstyrkur – Heilsueflandi stuðningur
📅 Umsóknarfrestur: 14.12 - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri
✉️ [email protected]
Íslenska
Enska










