

Umsjónarkennari á miðstig í Kársnesskóla
Kársnesskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum umsjónarkennara á miðstig til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi
Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs. Hann byggir á gamalli sögu og góðum gildum en er nú nýr skóli með um 400 nemendur í 5. - 10. bekk. Við skólann starfa um 60 starfsmenn og þar ríkir liðsheild og góður starfsandi.
Í Kársnesskóla er teymiskennsla og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að allir nemendur nái árangri. Unnið er skv. uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Allir nemendur eru með spjaldtölvur.
Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn kennsla og umsjón á miðstigi
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa góðan skólabrag
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
- Áhugi á að vinna í góðu teymi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar sveitarfélagsins.
Upplýsingar gefur Sigrún Valdimarsdóttir skólastjóri í síma 441-4600 og í gegnum netfangið [email protected]
Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.
Íslenska










