

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð er sex deilda leikskóli í Salahverfinu, sem er í stöðugri þróun. Þar starfa um 35 starfsmenn með 106 börnum á aldrinum 1-6 ára. Í leikskólanum starfar faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.
Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði með lýðræði að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru sjálfræði - gleði - virðing - lýðræði.
Starfið felur í sér að styðja við nám og þroska barna ásamt því að halda uppi í samráði við deildarstjóra og leikskólastjóra faglegu starfi í leikskólanum.
Kópavogsbær vinnur samkvæmt Kópavogsmódelinu þar sem börnum og foreldrum þeirra býðst 6 tíma gjaldfrjáls leikskóladvöl ásamt skráningardögum. Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogur
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst eða fyrr.
- Þátttaka í leik og starfi með börnunum sem byggir á frumkvæði og teymisvinnu starfsmanna
- Gott og uppbyggilegt samstarf við foreldra
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
- Önnur verkefni sem fram koma í starfslýsingu
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Ábyrgð, áreiðanleiki og jákvæðni
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
- Styttri vinnuvika
- Frítt fæði
- Íþróttastyrkur
Íslenska










