

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hraunvallaleikskóli leitar að áhugasömum og metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starf. Starfið er laust frá 4. ágúst næstkomandi.
Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í sama húsnæði og Hraunvallaskóli sem stuðlar að samþættu námi barnanna frá því þau stíga sín fyrstu skref í leikskóla að sextán ára aldri. Gildi skólans endurspegla allt starf og eru vinátta, samvinna og ábyrgð. í Hraunvallaleikskóla er unnið eftir hugmyndafræði John Dewey um virka þátttöku barnsins í námi með áherslu á leik og samfélagslega þátttöku barna. Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
- Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er kostur/æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
- Samgöngustyrkur
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur leikskólastjóri [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska



































