
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Leikskólinn Drekadalur - Kennarar
Nýr leikskóli, leikskólinn Drekadalur í Innri Njarðvík leitar eftir drífandi, skipulögðum og jákvæðum kennurum í okkar frábæra teymi þar sem starfsandinn í Drekadal er góður og einkennist af virðingu, jákvæðni, gleði og góðri samvinnu. Um fjölbreytt framtíðarstörf er að ræða sem krefst góðra hæfni í mannlegum samskiptum.
Leikskólinn Drekadalur verður með allt að 120 nemendum næsta skólaár 2026 - 2027. Í Drekadal er lögð áhersla á samvinnu, nýtingu mannauðs, flæði og útinámi ásamt leik barna sem er gert hátt undir höfði í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans er gleði, leikur, virðing og hugrekki og einkunnarorð leikskólans er með opnum hug og gleði í hjarta þar sem við viljum að öllum börnum, foreldrum og starfsfólki líði vel.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barnanna
- Taka þátt í skipulagningu starfs
- Taka þátt í foreldrastarfi í samráði við deildarstjóra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur honum
- Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
- Færni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Stundvísi og reglusemi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Hreint sakarvottorð skilyrði
Hlunnindi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Drekadalur 2
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Barnaborg í Aðaldal leitar að leikskólakennara.
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Aðstoðarskólastjóri óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Kennarar óskast til starfa við skólann
Fellaskóli Fellabæ

Grunnskólakennarar
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum

Útinámskennari í leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur
Bolungarvíkurkaupstaður

Textílkennari óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Umsjónarkennarar óskast á yngsta- og miðstigi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Deildarstjóri kennslu óskast
Grunnskólinn á Hellu

Kennari óskast í 50% starf
Grunnskólinn á Hellu

Leikskólakennari óskast
Framtíðarfólk ehf.