Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu

Kennari óskast í 50% starf

Staða kennara við Grunnskólann Hellu er laus til umsóknar. Um er að ræða 50% stöðu næsta skólaár sem felur í sér kennslu skjólstæðinga sem dvelja á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti í Rangárþingi ytra.

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með skjólstæðingum Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected]

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Starfstími næsta skólaárs byrjar 1. ágúst 2026.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurjón Bjarnason, skólastjóri Grunnskólans Hellu á netfanginu [email protected] og Dögg Þrastardóttir forstöðumaður meðferðaheimilis Lækjarbakka á [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2026

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla helstu námsgreina grunnskólanemenda samkvæmt einstaklingsnámskrá skjólstæðinga

Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun/leyfisbréf til kennslu
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Þekking og reynsla af meðferðarúrræðum BOFS kostur
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af starfi með unglingum nauðsynleg
  • Ríkuleg hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg

Hreint sakavottorð og bílpróf eru skilyrði.

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Útskálar 6-8, 850 Hella
Gunnarsholt 164495, 851 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar