

Matreiðslumaður óskast til starfa
Sjáland leitar að matreiðslumanni
Leikskólinn Sjáland leitar að metnaðarfullum matreiðslumanni sem vill taka þátt í kraftmiklu teymi stjórnenda í frábæru umhverfi við ströndina í Garðabæ. Um er að ræða lykilstarf þar sem matreiðslumaður er jafnframt hluti af stjórnunarteymi skólans.
Við leitum að öflugum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á matreiðslu, góða skipulagshæfni og metnað til að halda uppi háum gæðastöðlum í eldhúsi leikskólans. Mikilvægt er að viðkomandi hafi jákvætt hugarfar, frumkvæði og góða samskiptahæfileika.
Það býr mikill kraftur í mannauði skólans og metnaður okkar er að gera sterkt teymi enn þá öflugra með þessari ráðningu.
Vinnutími er 7:30-15:30.
Um leikskólann
Leikskólinn Sjáland er sjálfstætt starfandi leikskóli sem vinnur eftir Fjölvísistefnu Howards Gardner sem byggir á virðingu fyrir margbreytileika fólks og fjölbreyttum námsaðferðum. Markmið okkar er að mæta hverju barni þar sem það er statt og stuðla að jákvæðri og sterkri sjálfsmynd þess.
Skólinn er staðsettur við ströndina í Sjálandshverfinu í Garðabæ í nýlegu og rúmgóðu húsnæði. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni okkar www.sjaland.is
Nánari upplýsingar um skólann má fá í síma 578-1220
- Dagleg stjórnun eldhúss
- Matreiðsla á hollum og fjölbreyttum máltíðum fyrir börn og starfsfólk
- Gerð matseðla með áherslu á næringu og gæði
- Innkaup og birgðastýring
- Ábyrgð á hreinlæti og öryggi í eldhúsi
- Leiðsögn og stuðningur við aðstoðarfólk
- Virk þátttaka í stjórnunarteymi skólans
- Sveinspróf í matreiðslu
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Metnaður fyrir gæðum og fagmennsku
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Áhugi á næringu barna og heilsueflingu
- Skemmtilegt og krefjandi starf í faglegu umhverfi
- Tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í stjórnun
- Samheldinn og öflugur starfsmannahópur
- Virk skemmtinefnd og reglulegir viðburðir
- Dagleg útivera
- Stytting vinnuvikunnar eru 2 frídagar í mánuði (öðrum er safnað upp fyrir t.d. frí í dymbilviku og aðra daga þegar nemendur eru í fríi)
- Mætingarbónus
- Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsmenn Garðabæjar
Íslenska










