Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Hellu

Deildarstjóri kennslu óskast

Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir deildarstjóra fyrir skólaárið 2026-2027.

Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027.

Öll vinnu og kennsluaðstaða er til fyrirmyndar í nýju skólahúsnæði sem tekið verður í notkun næsta skólaár

Umsókninni skal fylgja afrit af leyfisbréfi og greinargóð skýrsla/ferilskrá um fyrri störf umsækjanda, menntun, kennslu – og stjórnunarreynslu og þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi deildarstjóra.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:

Sigurjón Bjarnason skólastjóri á netfang [email protected] eða í síma 488 7021 / 896 4841

Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang [email protected] eða í síma 488 7022 / 848 1467

Umsóknarfrestur er til 12. maí 2026

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk og markmið

  • Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans. Hlutverkið felur í sér að tryggja gæði kennslu, vellíðan nemenda og faglegt samstarf innan skólans. Deildarstjóri heyrir undir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
  • Deildarstjóri vinnur náið með öðrum deildarstjórum, kennurum og stoðþjónustu.

Helstu ábyrgðarsvið

  • Leiða faglegt starf kennara og stuðningsfulltrúa innan skólans.
  • Skipuleggja og samræma kennslu, námsáætlanir og faglega þróun.
  • Fylgja eftir námsframvindu nemenda, námsmati og einstaklingsnámskrám.
  • Tryggja að stuðningsúrræði og sértæk þjónusta séu útfærð og framkvæmd í samræmi við þarfir nemenda.
  • Stýra teymisfundum, stuðla að faglegri umræðu og samvinnu og sinna foreldrasamskiptum.
  • Halda utan um skráningar, fundargerðir og önnur nauðsynleg gögn.
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfnikröfur

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla af kennslu og deildarstjórastörfum í grunnskóla.
  • Góð leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp jákvætt og faglegt starfsumhverfi.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og fagleg dómgreind.
  • Færni í notkun skóla- og upplýsingakerfa.
Fríðindi í starfi

Aðstoðað verður við húsnæðisleit í nágrenninu ef þörf er á.

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Útskálar 6-8, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar