Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Barnaborg í Aðaldal leitar að leikskólakennara.

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal leitar að áhugasömum kennara í framtíðarstarf. Barnaborg er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit á Norðurlandi. Í starfi skólans er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Sjá nánar um skólann á: thingeyjarskoli.is.
- Um er að ræða 80-100% starf.
- Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
- Aðstoð veitt við að finna húsnæði í nágrenni skólans.
- Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.• Virk þátttaka í skólaþróunarstarfi, skráningu á námi barnanna og reglulegum teymis- og starfsmannafundum.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi. 
• Áhugi á að vinna með börnum og þróa öflugt leikskólastarf.
• Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
• Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi.
• Sveigjanleiki, jákvæðni og áreiðanleiki.
• Hreint sakavottorð (fylgi umsókn).

 
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarskóla Aðaldal. 641 Húsavík (dreifbýli)
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar