

Deildarstjóri stoðþjónustu í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli auglýsir tímabundna stöðu deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026 til 31. júlí 2027.
Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum starfsmanni sem vill starfa í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk.
Deildarstjóri situr í stjórnendateymi skólans og starfar samkvæmt stefnu skólans sem tekur m.a. mið af menntastefnu Sveitafélagsins Árborgar, aðalnámskrá grunnskóla, lögum og reglugerðum um grunnskóla og lögum um farsæld barna.
Deildarstjóri fer með mannaforráð og daglega verkstjórn. Hann þarf að vera öðrum góð fyrirmynd og öflugur ráðgjafi í krefjandi starfsumhverfi. Því skiptir þekking deildarstjóra á viðfangsefnum skóla- og uppeldismála, farsæld og stuðningsúrræða gríðarlega miklu máli.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Að vera faglegur leiðtogi sem yfirfærir sýn og stefnu skólans á skólastarfið með þróunarstarfi og þeim björgum og úrræðum sem við á hverju sinni til að ná þeim markmiðum
- Skapa góðan vinnuanda með því að hlúa að starfsmönnum. Stuðla að samvinnu, samkennd og samábyrgð gagnvart faglegu starfi skólans
- Samskipti við nemendur og rýni í dagleg störf starfsmanna með það að leiðarljósi að geta veitt ráðgjöf sem nýtist í þeim aðstæðum sem við á hverju sinni
- Sinna faglegri kennslufræðilegri forystu með áherslu á þróun í kennsluháttum
- Veita starfsfólki endurgjöf og leiðsögn
- Samskipti við grunnþjónustu skólans, s.s. foreldra, skólaþjónustu, heilsugæslu, fræðsluaðila o.s.frv. Þessi samskipti eiga ávallt að vera í þágu nemenda og starfsmanna
- Skipuleggja og leiða fundi í þágu skólastarfsins og skólaþróunar
- Skipuleggur stundatöflur fagfólks í samráði við aðra stjórnendur
- Tekur þátt í störfum teyma og ráða innan skólans, í samráði við skólastjóra
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur
- Grunnskólakennararéttindi áskilin
- Þekking og reynsla af stoðþjónustu áskilin
- Menntun á sviði sérkennslu æskileg
- Menntun og reynsla í stjórnun æskileg
- Forystu- og stjórnunarhæfileikar
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar
- Frumkvæði í starfi
Íslenska










