Leikskólar stúdenta
Leikskólar stúdenta
Leikskólar stúdenta

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?

Félagsstofnun stúdenta óskar eftir að ráða metnaðarfulla og áhugasama leikskólakennara/ starfsfólk, til að starfa á leikskólum FS. Leikskólarnir bjóða upp á gott starfsumhverfi þar sem vellíðan barna og starfsfólks er höfð að leiðarljósi. Leikskólinn tekur þátt í styttingu vinnuvikunnar, sem felur í sér 7 klukkustunda vinnudag.

Kærleikur, gleði, jákvæðni og frumkvæði eru okkur mikilvægir þættir í starfi með börnum. Við leitum því að jákvæðu og kærleiksríku starfsfólki sem er tilbúið að tileinka sér vinnubrögð HighScope stefnunnar, sem leikskólar FS vinna eftir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hreint sakavottorð er skilyrði.

Íslenskukunnátta er skilyrði.

Leikskólarnir eru í eigu Félagsstofnunar stúdenta og nýtur starfsfólk FS ýmiss konar fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.

Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar:

Ragnhildur Ýr Jóhannsdóttir: [email protected].

Ásta Rós Snævarsdóttir: [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í daglegu starfi á deildum og sinna umönnun, leik og námi barna í samvinnu við deildarstjóra og annað samstarfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd faglegs starfs í samvinnu við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Styðja við vellíðan og öryggi barna í daglegu starfi.
  • Aðstoða börn við daglegar athafnir, svo sem máltíðir, klæðnað, hvíld og útivist.
  • Fylgja verkferlum leikskólans um öryggi, hreinlæti og velferð barna.
  • Stuðla að góðu samstarfi og jákvæðum samskiptum við samstarfsfólk og foreldra.
  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum í samráði við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun eða nám sem nýtist í starfi á leikskóla er æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Fríðindi í starfi

Leikskólarnir eru í eigu Félagsstofnunar stúdenta og nýtur starfsfólk FS ýmiss konar fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.

FS er með öflugt starfsmannafélag sem sér m.a. um að skipuleggja árshátíðarferðir erlendis, annað hvert ár. 

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eggertsgata 14, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar