
Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Umsjónarkennari
Frá og með 1. ágúst 2026 er laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi í Austurbæjarskóla. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 330 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Menntun og hæfni til að sinna bekkjarkennslu og starfa með börnum.
- Reynsla og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar þarfir.
- Kunnátta, hæfni og reynsla af lestrarkennslu mikilvæg.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt30. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umjónarkennari á unglingastigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Kópavogsskóli - deildarstjóri stoðþjónustu
Kópavogsskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli

Verkefnastjóri læsis
Austurbæjarskóli

Umsjónarkennari í 3. - 4. bekk Smáraskóla
Smáraskóli

Dönskukennari í Smáraskóla
Smáraskóli

Leikskólinn Drekadalur - Kennarar
Reykjanesbær

Deildarstjóri kennslu óskast
Grunnskólinn á Hellu