
Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Þroskaþjálfi
Frá og með 1. ágúst 2026 er laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa í Austurbæjarskóla. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast þjálfun/stuðning við nemendur í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna með félagsfærni og aðlaga námsefni og námsaðstæður.
- Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
- Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við kennara og deildarstjóra.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH)
- Kunnátta, hæfni og reynsla af starfi með börnum með fjölbreyttar þarfir mikilvæg.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði.
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Landspítali

Leikskólakennarar
Leikskólinn Goðheimar

Leikskólakennarar
Leikskólinn Hulduheimar

Þroskaþjálfi á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Þroskaþjálfi - Gerðaskóli
Suðurnesjabær

Sérkennari Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Leikskólakennari
Ævintýraborg Vogabyggð

Þroskaþjálfi/sérkennari/iðjuþjálfi óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólakennarar
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólasérkennari/Þroskaþjálfi
Leikskólinn Jötunheimar

Árbær á Selfossi - Skólaárið 2026-2027
Hjallastefnan