Landspítali
Landspítali
Landspítali

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild

Við leitum að öflugum stjórnanda með menntun á sviði iðjuþjálfunar, sálfræði, félagsráðgjafar eða þroskaþjálfafræða til að leiða og efla starfsemi barna- og unglingageðdeildar. Í kjarna starfsins er stuðningur og aðhald við þverfaglega liðsheild þar sem þarfir þjónustuþega, gagnreyndar aðferðir og öryggi eru í forgrunni. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra hjúkrunar, yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað samstarfsfólk. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kvenna- og barnaþjónustu.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda og fjölskyldur þeirra. Á barna- og unglingageðdeild starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu, faglega örvandi og líflegu starfsumhverfi þar sem kapp er lagt á menningu sálræns öryggis. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun. Áhersla er lögð á skilvirkni og nýsköpun og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.

Deildarstjóri faghópa er leiðtogi hóps fagfólks með fjölbreyttan þekkingargrunn og hefur þríþætta ábyrgð: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sálfræðings, þroskaþjálfa, félagsráðgjafa eða iðjuþjálfa
Haldbær starfsreynsla sem klínískur heilbrigðisstarfsmaður
Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, geta til að vinna undir álagi
Góð íslensku- og enskukunnátta, færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
Góð tölvukunnátta, geta og vilji til að læra nýjungar
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og skipulagi starfseminnar, stuðlar að fjölfaglegri þekkingarþróun og umbótastarfi, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna
Er virkur þátttakandi í samstarfi stjórnenda kvenna- og barnaþjónustu
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
Er í virku samtali við samstarfsstofnanir og helstu hagaðila
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (34)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Dagvinna meðferðaraðila á Svefnmiðstöð
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í skurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á menntadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á göngudeild þvagfæra
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á bráðaöldrunarlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Vörustjóri hugbúnaðarlausna
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir við Líknarmiðstöð
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður á brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmislækninga
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á útskriftarmiðstöð í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum
Landspítali
Landspítali
Speciallæge i endokrinologi ved Landspitali, Island
Landspítali
Landspítali
Specialist in Endocrinology
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á brotaendurhæfingardeild
Landspítali
Landspítali
Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Umsókn um launaða starfsþjálfun sjúkraliðanema skv. námskrá vorönn 2026
Landspítali