

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti
Tækifæri fyrir framsækinn hjúkrunarfræðing!
Á göngudeild Landakoti vinnur fjölfaglegt teymi að því að veita einstaklingsmiðaða umönnun og stuðning fyrir einstaklinga sem búa heima. Við leitum eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum, jákvæðum og glaðlegum hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við okkur. Við veitum þér einstaklingsmiðaða aðlögun í upphafi starfsins.
Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi. Upphaf starfa er samkvæmt samkomulagi en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Unnið er á tímabilinu frá kl. 8-16 virka daga.
Á deildinni er góður starfsandi og unnið lausnamiðað í samstarfi við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Virkt endurmenntunarkerfi er á deildinni, deildin er með vikulega fræðslufundi og stendur fyrir fræðsludegi einu sinni á ári.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Íslenska












































