Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Hólum

Kennslustjóri við Háskólann á Hólum

Laust er til umsóknar fullt starf kennslustjóra við Háskólann á Hólum. Kennslustjóri tilheyrir stjórnsýslu skólans og vinnur náið með stjórnendum og akademísku starfsfólki ásamt því að vera í miklum samskiptum við nemendur. Kennslustjóri þarf að hafa skýra sýn á þróun kennslumála og háskólastarfs auk þess að hafa hæfileika til að leiða starf kennsluskrifstofu inn í framtíðina með nútímalegum kennsluaðferðum og þverfræðilegri samvinnu.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um opinbera háskóla þar sem m.a. er fjallað um stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Kennslustjóri mun koma að þeirri vinnu og gegna mikilvægu hlutverki varðandi framtíð skólastarfs við Háskólann á Hólum. Stofnun háskólasamstæðu er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér ýmsar áskoranir tengdar verkefnum kennsluskrifstofu og því þarf kennslustjóri að hafa vilja og getu til að vinna að undirbúningi og innleiðingu háskólasamstæðu og skipulagi kennsluskrifstofu með gæði náms og jákvætt háskólasamfélag í huga.

Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum einstaklingi sem hefur vilja, getu og sýn til að vinna að þróun náms og kennslu við Háskólann á Hólum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð og eftirfylgni með daglegum verkefnum kennsluskrifstofu

  • Fagleg forysta á kennslutengdum málum og á málefnasviði kennsluskrifstofu

  • Framþróun kennsluhátta, mælingar og eftirlit með gæðum náms

  • Ábyrgð og umsjón með námsskrám, nemendabókhaldi og skipulagi náms og kennslu

  • Ábyrgð á innritun, prófum og brautskráningu nemenda

  • Samræmd miðlun upplýsinga á vef, í ferlum og reglum

  • Seta í nefndum og ráðum skólans ásamt því að fylgja eftir ákvörðunum og koma að skýrslugerð

  • Stuðningur, ráðgjöf og upplýsingamiðlun til nemenda, kennara, stjórnenda og starfsfólks háskólans

  • Samskipti við ýmsa ytri hagaðila skólans og samstarf við aðra háskóla

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, kostur ef viðkomandi hefur einnig lokið meistaraprófi sem tengist starfssviði

  • Viðbótarmenntun í menntunarfræðum er kostur

  • Reynsla af skólastarfi er æskileg, sérstaklega á sviði náms og kennslu

  • Reynsla af því að leiða teymisvinnu

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Góð greiningahæfni og nákvæmni

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Reynsla af vinnu við náms- og kennslukerfi s.s. Uglu, Canvas og Inspera er kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta með áherslu á Microsoft 365 og skýjalausnir ásamt því að hafa áhuga á að tileinka sér og innleiða nýjungar m.a. á sviði gervigreindar

Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólar 146440, 551 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar